Mest lesið
-
1Reynsla7
Erla María Markúsdóttir
Hjúkkan sem reyndi að bjarga mér á bráðamóttökunni – og sagði svo upp
Fyrir tveimur árum, upp á dag, dvaldi ég á biðstofu á bráðamóttökunni í rúmar fimm klukkustundir án þess að hitta lækni. Hjúkrunarfræðingurinn sem reyndi að koma mér inn í kerfið gat það ekki. Hún gaf sjálf upp vonina og sagði upp. -
2Fréttir4
Öryggisverðir gæta Bjarna – „Nokkuð góðir í að vera ósýnilegir“
Bjarni Benediktsson forsætisráðherra vill ekki kalla þá lífverði, öryggisverðina sem fylgja honum hvert fótmál. „Þeir eru nokkuð góðir í að vera ósýnilegir þannig að ég geti sinnt mínum störfum,“ segir hann. Áhættumat vegna öryggis ráðherra ríkisstjórnar Íslands er í sífelldri endurskoðun, samkvæmt embætti ríkislögreglustjóra. -
3Fólkið í borginni1
Að njóta lífsins ein og kostaði hana eina evru
Ólafur Þórhallsson rifjar upp atvik sem kenndi honum núvitund í sinni skýrustu mynd. -
4ViðtalHlaupablaðið 2024
„Ótrúlega falleg framtíðarsýn“ að hlaupa með pabba sínum á níræðisaldri
Rannveig Hafberg hélt að hún gæti aldrei byrjað að hlaupa. Hún léttist um 38 kíló á einu og hálfu ári með breyttu mataræði og hleypur væntanlega sitt tíunda ofurmaraþon á Laugaveginum í sumar. Eysteinn Hafberg, faðir hennar, byrjaði að hlaupa um sjötugt eftir hjartaáfall. Hann er orðinn fræg fyrirmynd í íslenska hlaupaheiminum. Móðir hennar er líka byrjuð að hlaupa. Og barnabörnin. -
5FréttirFlóttamenn
Eigi að læra íslensku áður en fjölskyldan kemur
Meirihluti allsherjar- og menntamálanefndar telur efni til að víkka aðeins skilyrði til fjölskyldusameiningar í umdeildu útlendingafrumvarpi. Skilyrði til undanþágu eru þó fremur ströng: Flóttamaðurinn sem sækir um fjölskyldusameiningu gæti fengið undanþágu ef hann hefur á einu ári lært íslensku, verið virkur á vinnumarkaði í átta mánuði, hefur tiltækt íbúðarhúsnæði fyrir fjölskylduna og getur framfleytt sér. -
6Leiðari1
Þórður Snær Júlíusson
Er það að gefa að minnsta kosti hálfan milljarð góð meðferð opinbers fjár?
Fyrrverandi ríkislögreglustjóri með sterk flokkspólitísk tengsl tók ákvörðun um að gera vel við nána samstarfsmenn sína rétt áður en þeir fóru á eftirlaun og rétt áður en hann þurfti að semja um starfslok. Kostnaðurinn við þessa ákvörðun er að minnsta kosti rúmlega 500 milljónir króna og skattgreiðendur bera hann. Tveir núverandi ráðherrar voru kolrangstæðir í yfirlýsingum sínum um málið að mati Hæstaréttar og núverandi dómsmálaráðherra getur ekki fengið sig til að biðja um rannsókn á því. -
7Lífið1
Algjör stemning að láta heilaþvo sig til að hætta að taka í vörina
Nikótínfíkn hefur reynst mörgum erfið. Á síðustu öld hlustuðu margir á kassettur af bók Allen Carr til að hætta að reykja sígarettur. Í dag gengur sú meðferð, reyndar á stafrænu formi, í endurnýjun lífdaga á meðal Íslendinga sem vilja bæta líf sitt með því að hætta að nota nikótínpúða. -
8FréttirForsetakosningar 20245
Forsetaembættið sé áhrifaembætti, ekki valdaembætti
Forsetaframbjóðandinn Katrín Jakobsdóttir segir að það sé eðlisólíkt að vera forseti og forsætisráðherra. „Ég veit að sumir segja að ég sé of metnaðarfull, en það er mjög oft sagt um konur að þær séu of metnaðarfullar og ætli sér of mikið.“ -
9Fréttir3
Bjarni segir þetta ár það sterkasta í íslenskri efnahagssögu
„Þetta er sterkasta ár Íslands í efnahagssögunni,“ fullyrti Bjarni Benediktsson, fyrrverandi fjármálaráðherra og núverandi forsætisráðherra, á Alþingi. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, bað ráðherra að „girða sig í brók“, skoða stóru myndina og taka utan um alla hópa, ekki bara sína eigin. -
10FréttirForsetakosningar 20243
Halla Hrund og Katrín hnífjafnar en með undir fjórðungs fylgi hvor
Halla Tómasdóttir er sá frambjóðandi sem er að bæta hraðast við sig fylgi. Nú, 15 dögum fyrir kosningar, er hún komin á sama stað og hún var níu dögum fyrir kosningar 2016. Þá endaði hún með 27,9 prósent atkvæða sem myndi duga til sigurs eins og sakir standa.